fbpx Skip to main content

Vegna afturköllunar starfsleyfis NOVIS

Seðlabanki Íslands hefur gefið út Spurt og svarað um afturköllun starfsleyfis NOVIS. Þar kemur meðal annars fram:

Afturköllun starfsleyfis NOVIS ein og sér, hefur ekki áhrif á gildi núgildandi vátryggingarsamninga félagsins eða vátryggingavernd á grundvelli þeirra.

Áréttað er að hvorki afturköllun starfsleyfis NOVIS né skipun skilastjóra yfir félaginu leiðir til sjálfkrafa uppsagna á vátryggingarsamningum þess. Vátryggingarsamningar NOVIS og vátryggingavernd á grundvelli þeirra er því óbreytt þrátt fyrir ofangreint, að svo stöddu.

Nánari upplýsingar eru að finna hér.

Fyrir frekari upplýsingar um þinn samning og stöðu samningsins getur þú sent fyrirspurn á tryggir@tryggir.is

Life Savings Plan

Söfnunarlíftrygging sem býður upp á sparnað, líftryggingu, sjúkdóma- og örorkutryggingu. Hver bótaþáttur er sjálfstæður, þ.e. bætur úr einum bótaþætti skerða ekki aðrar bætur, né hafa áhrif á sparnaðinn. Tryggðu framtíðina með Novis.

Líftrygging NOVIS

Greiðir rétthöfum bætur í kjölfar fráfalls hins vátryggða. Fjárhagsleg vernd fyrir aðstandendur. Inneign í sparnaði greiðist út til viðbótar við útgreiðslu líftryggingar, auk tryggðarbónus.

Örorkutrygging NOVIS

Bætur til að takast á við tekjutap vegna örorku eftir slys eða sjúkdóm. Lágmarks bótaskylda varanlegrar örorku vegna slyss er 15%, en 25% vegna sjúkdóma. Bætur eru greiddar í hlutfalli við örorku.

Sjúkdómatrygging NOVIS

Mjög víðtæk sjúkdómatrygging. Greiðir bætur fyrir 30 sjúkdóma. Ef greiddar eru bætur vegna sjúkdóms, er sjúkdómatryggingin enn í gildi fyrir 29 sjúkdóma (líða þurfa þó tvö ár til þess að unnt sé að fá bætur vegna annars sjúkdóms).

Skilmálar Life Savings Plan GTC - 17191006Skilmálar Life Savings Plan GTC - 17191207Skilmálar Life Savings Plan GTC - 17210809

Flexible Savings Plan

Flexible Savings Plan er sparnaðarlíftrygging sem er sérsniðin að þeim sem eru eldri en 50 ára. Sveigjanlegur sparnaður í evrum með vali um þrjá öfluga fjárfestingasjóði með mismunandi fjárfestingaáhættu. Í boði eru mánaðarlegar greiðslur eða eingreiðsla.

Ef til andláts kemur, eru rétthöfum greiddar dánarbætur og tryggðarbónus, auk þeirrar inneignar sem myndast hefur á samningstímanum.

Skilmálar Flexible Savings Plan - GTC 17200508Skilmálar Flexible Savings Plan - GTC 17210810

Life Protector

Life Protector er líf- og sjúkdómatrygging.

Greiðir rétthöfum bætur í kjölfar fráfalls hins vátryggða. Fjárhagsleg vernd fyrir aðstandendur.

Mjög víðtæk sjúkdómatrygging. Greiðir bætur fyrir 30 sjúkdóma.

Ef greiddar eru bætur vegna sjúkdóms, er sjúkdómatryggingin enn í gildi fyrir 29 sjúkdóma (líða þurfa þó tvö ár til þess að unnt sé að fá bætur vegna annars sjúkdóms).

Skilmálar Life Protector - GTC 17210811