
Tryggingar og ráðgjöf ehf. (T&R) hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 frá Viðskiptablaðinu og Keldunni. Félagið er þar með í hópi þeirra 5,4% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslega afkomu og rekstur.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ákveðin fjárhagsleg skilyrði, meðal annars um jákvæða afkomu, eiginfjárstöðu og rekstrarárangur á undanförnum árum.
Við hjá T&R erum afar ánægð með viðurkenninguna og lítum á hana sem ánægjulega staðfestingu á traustum rekstrargrundvelli félagsins.
Viðurkenningin er okkur jafnframt hvatning til að halda áfram að byggja upp öflugt fyrirtæki með áherslu á fagmennsku, vandaða ráðgjöf og langtímasambönd við viðskiptavini okkar.

