Vorið 2026 halda Tryggingar og ráðgjöf ehf. mánaðarlega fræðslufundi um allt sem fólk þarf að vita um viðbótarlífeyrissparnað. Fundirnir eru opnir öllum og ókeypis. Þeir verða á Hilton Reykjavík Nordica á þriðjudögum kl. 17-18. Dagsetningarnar eru 24. mars, 21. apríl, 19. maí og 9. júní.
Gestafyrirlesari á fundunum er Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi, sem var áður fræðslustjóri og deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka. Fundarstjóri verður Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri T&R.
Skráning:
Fræðslufundir T&R Gestafyrirlesari: Björn Berg Gunnarsson
Umfjöllunarefnin eru eftirfarandi, en einnig verður boðið upp á spurningar úr sal.
- Hverjir eru helstu kostir viðbótarsparnaðar og viðbótarlífeyrissparnaðar?
- Eru mismunandi ávöxtunarleiðir?
- Hversu fljótt myndast inneign?
- Hvernig greiðum við viðbótarsparnað skattfrjálst inn á íbúðalán?
- Er hægt að nýta sparnaðinn ef fólk er að kaupa sér fasteign?
- Hvað með starfslok og viðbótarsparnað?
- Hvernig líta skattamálin út kringum úttektir, erfðir og fleira?
- Hver er munurinn á séreign og viðbótarlífeyrissparnaði?

