Arnar Már Jóhannesson og Ásgerður Ágústsdóttir skrifa.
Undirrituð vilja að gefnu tilefni skýra hlutverk og starfsskilyrði vátryggingamiðlana ásamt því að greina stuttlega frá sögu starfsgreinarinnar á Íslandi.
Strangt eftirlit með vátryggingamiðlunum
Í upphafi skal þess getið að íslenskar vátryggingamiðlanir eru starfsleyfisskyldar samkvæmt sérstökum lögum um dreifingu vátrygginga. Vátryggingamiðlanir eru sömuleiðis skyldugar til að kaupa starfsábyrgðartryggingar til verndar viðskiptavinum og starfa við mjög þröngan ramma, sem þeim er sniðinn af reglugerðum og löggjöf. Vátryggingamiðlanir þurfa með öðrum orðum að uppfylla miklar hæfniskröfur og sæta ströngu eftirliti fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
Vátryggingamiðlanir jafnaldrar vátryggingafélaga
Vátryggingamiðlun er jafngömul starfsgrein erlendis og vátryggingafélögin sjálf. Þessir aðilar starfa hlið við hlið á þróuðum vátryggingamörkuðum og eiga hvarvetna í miklu samstarfi. Þessar miðlanir eru allt frá litlum fjölskyldufyrirtækjum að stærð og upp í alþjóðleg risafyrirtæki sem eru skráð í kauphallir.
Vátryggingarekstur grundvallast á nokkrum starfsþáttum: framleiðslu, sölu og þjónustu. Það þarf sem sagt að framleiða vöru, markaðssetja og selja, og loks þjónusta viðskiptavini. Þessi virðiskeðja er verðlögð og viðskiptavinur greiðir eitt endanlegt verð sem stendur undir öllum þessum þáttum auk eðlilegs hagnaðar fyrir starfsemina.
Farsælt að útvista markaðsmálum, sölu og þjónustu
Samband vátryggingamiðlana og vátryggingafélaga gengur út frá að vátryggingafélagið sjálft sjái um að framleiða vöruna, það er tæknilegan rekstur vátryggingastofns, og sjái jafnframt um peningaeignina sem stendur á bak við vátrygginguna. Vátryggingamiðlun sér á hinn bóginn um markaðssetningu og sölu vátrygginga auk þjónustu við vátryggingataka.
Vátryggingafélagið hefur þar með útvistað þessum tiltekna hluta starfsemi sinnar – markaðsmálum, sölu og þjónustu – og greiðir vátryggingamiðlun umboðslaun fyrir þjónustu í samræmi við iðgjaldið sem vátryggingatakinn greiðir. Þetta telja vátryggingafélög almennt hagkvæmt viðskiptasamband fyrir sig og vátryggingataka þar sem félagið þarf þá ekki að halda úti, eða í minna mæli, sölu- og markaðsdeildum eða þjónustuskrifstofum.
Íslensk vátryggingafélög kaupa allar endurtryggingar erlendis
Íslensku vátryggingafélögin kaupa endurtryggingar sínar á alþjóðlegum mörkuðum gegnum erlendar vátryggingamiðlanir. Stóru alþjóðlegu endurtryggingafélögin hafa hvorki sölu- og markaðsdeildir né þjónustuskrifstofur. Vátryggingamiðlanir sjá alfarið um þennan hluta starfseminnar fyrir þeirra hönd. Hið þekkta vátryggingafélag Lloyds of London er til dæmis uppbyggt með þessum hætti. Það getur enginn keypt vátryggingu hjá Lloyds nema gegnum vátryggingamiðlun.
Vátryggingamiðlun á Íslandi
Hér á íslandi hófst vátryggingamiðlun í kjölfar inngöngu Íslands í EES árið 1994. Þá innleiddi Ísland evrópskt regluverk sem fól í sér lagagrundvöll fyrir vátryggingamiðlun og frelsi evrópskra vátryggingafélaga til að bjóða þjónustu sína hér á landi. Fyrsta íslenska vátryggingamiðlunin hóf starfsemi sína 1995. Öll íslensku vátryggingafélögin hafa verið í samstarfi við vátryggingamiðlanir og Vörður er til dæmis virkt í slíku samstarfi í dag.
Þess má geta að erlend félög, og þá sérstaklega líftryggingafélög, sáu tækifæri til að koma inn á íslenska markaðinn með milligöngu íslenskra vátryggingamiðlana og störfuðu hér við góðan orðstír um langt árabil. Þar má nefna ensku líftryggingafélögin Sun Life og Friends Provident. Samstarf þeirra við Íslendinga gekk mjög vel og tugþúsundir völdu þessar ensku líftryggingar fyrir tilstuðlan íslenskra vátryggingamiðlana frá árinu 1995 og fram eftir næsta áratug þar á eftir.
Jákvæð peningainnspýting í Hruninu
Fyrrnefndar enskar líftryggingar fólu í sér þann möguleika, að með því að greiða iðgjald sitt eignuðust vátryggingatakar peningainneign í líftryggingu sinni. Þegar kom að efnahagshruninu árið 2008 áttu tugþúsundir Íslendinga þar með verulegar peningaeignir í erlendum gjaldeyri inni í líftryggingum sínum. Má slá föstu að um þær hafi reglulega munað og jafnvel skipt sköpum fyrir þúsundir Íslendinga, enda hrundi gengi íslensku krónunnar og verðmæti trygginga þeirra jókst að sama skapi. Líftryggingar hjá erlendum aðilum í stöðugra efnahagsumhverfi en því íslenska geta með öðrum orðum verið snjallur og tiltölulega áhættulítill kostur.
Fögnum starfsemi íslenskra vátryggingamiðlana
Íslenskir neytendur ættu að fagna starfsemi íslenskra vátryggingamiðlana sem eru umboðsaðilar sterkra og vandaðra erlendra tryggingafélaga. Þessi starfsemi er gluggi íslenskra neytenda út í stærri heim þar sem þeir geta átt viðskipti við gróin og þróuð félög sem veita nýjungar og aðgang að markaði sem annars myndi ekki bjóðast hér á landi.
Aðgangur íslenskra neytenda að starfsemi erlendra vátryggingafélaga með mörg hundruð ára rekstrarsögu, fjölbreytt vöruúrval og vandaða þjónustu dýpkar íslenska tryggingamarkaðinn. Þetta aðgengi fyrir tilstilli íslenskra vátryggingamiðlana eykur bæði samkeppni og þjónustu og er neytendum til góðs.
Arnar Már er stjórnarformaður vátryggingamiðlunarinnar Trygginga og ráðgjafar ehf. Ásgerður er framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 7. febrúar 2026.
