Skip to main content
Fréttir

Fræðsla sem borgar sig: Opnir fræðslufundir T&R vorið 2026

By mars 12, 2026No Comments

Vorið 2026 halda Tryggingar og ráðgjöf ehf. mánaðarlega fræðslufundi um allt sem fólk þarf að vita um viðbótarlífeyrissparnað. Fundirnir eru opnir öllum og ókeypis. Þeir verða á Hilton Reykjavík Nordica á þriðjudögum kl. 17-18. Dagsetningarnar eru 24. mars, 21. apríl, 19. maí og 9. júní.

Gestafyrirlesari á fundunum er Björn Berg Gunnarsson, sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi, sem var áður fræðslustjóri og deildarstjóri greiningar hjá Íslandsbanka. Fundarstjóri verður Ásgerður Ágústsdóttir framkvæmdastjóri T&R.

Skráning:

Fræðslufundir T&R Gestafyrirlesari: Björn Berg Gunnarsson

Umfjöllunarefnin eru eftirfarandi, en einnig verður boðið upp á spurningar úr sal.

  • Hverjir eru helstu kostir viðbótarsparnaðar og viðbótarlífeyrissparnaðar?
  • Eru mismunandi ávöxtunarleiðir?
  • Hversu fljótt myndast inneign?
  • Hvernig greiðum við viðbótarsparnað skattfrjálst inn á íbúðalán?
  • Er hægt að nýta sparnaðinn ef fólk er að kaupa sér fasteign?
  • Hvað með starfslok og viðbótarsparnað?
  • Hvernig líta skattamálin út kringum úttektir, erfðir og fleira?
  • Hver er munurinn á séreign og viðbótarlífeyrissparnaði?