Skip to main content
Fréttir

Leiðrétting á upplýsingagjöf um tengsl Trygginga og ráðgjafar ehf. við NOVIS

By júní 5, 2026No Comments

Tryggingar og ráðgjöf ehf. vill upplýsa að á tímabilinu frá desember 2018 til maí 2024 komu fram upplýsingar á vefsíðu félagsins, í upplýsingaskjölum og/eða umboðum þar sem fram kom að félagið væri óháður aðili og hefði engin tengsl við vátryggingafélög.

Rétt er að upplýsa að á framangreindu tímabili voru til staðar tiltekin eignar- og stjórnunarleg tengsl milli Trygginga og ráðgjafar ehf. og NOVIS (Insurance Company, NOVIS Versicherungsgesellschaft, NOVIS Compagnia di Assicurazioni, NOVIS Poisťovňa a.s.). Tengslin urðu til annars vegar í desember 2018 þar sem TRBO ehf., systurfélag T&R, eignaðist 4,43 % hlut í vátryggingafélaginu NOVIS og hins vegar árið 2022 þar sem stjórnarmaður í T&R tók sæti í 9 manna eftirlitsstjórn (supervisory board) NOVIS.

Félagið hefur nú leiðrétt upplýsingagjöf sína og gripið til úrbóta á verklagi og upplýsingamiðlun í samræmi við kröfur Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.