Fréttir

Mikilvægar upplýsingar um NOVIS-vátryggingarsamninga

By júlí 30, 2026ágúst 18th, 2026No Comments

///// Uppfært 18. ágúst 2026 /////

Við viljum koma á framfæri uppfærðum upplýsingum vegna stöðu NOVIS Insurance Company Inc. og mögulegra áhrifa hennar á vátryggingarsamninga við félagið.

Eins og áður hefur komið fram er nú til meðferðar fyrir dómstól í Slóvakíu beiðni um að NOVIS verði tekið til gjaldþrotaskipta. Ákvörðun um gjaldþrotaskipti liggur ekki fyrir á þessari stundu og því ríkir áfram óvissa um niðurstöðu málsins.

Vátryggingavernd ef til gjaldþrotaskipta kemur

Samkvæmt þeim upplýsingum sem T&R hefur aflað sér á þessu stigi er gert ráð fyrir að ef NOVIS verður tekið til gjaldþrotaskipta mun það leiða til loka á vátryggingasamningum við félagið. Vátryggingavernd samkvæmt þeim mun falla niður.

Viðskiptavinir sem telja mikilvægt að tryggja áframhaldandi vátryggingavernd komi til gjaldþrots eru hvattir til þess að skoða það tímanlega hvaða valkostir standa þeim til boða. Rétt er að hafa í huga að öflun nýrrar vátryggingar getur tekið tíma. Það á sérstaklega við þegar umsókn er háð heilsufarsupplýsingum, áhættumati eða annarri skoðun vátryggingafélags áður en ný vátrygging getur tekið gildi.

Slík ákvörðun er ávallt á ábyrgð viðskiptavinar og þarf að taka mið af aðstæðum og þörfum hvers og eins.

Ef NOVIS verður tekið til gjaldþrotaskipta

Verði NOVIS tekið til gjaldþrotaskipta mun taka við formlegt uppgjörsferli samkvæmt þeim lögum og reglum sem um félagið gilda í Slóvakíu.

Í slíku ferli kann að gilda tiltölulega skammur frestur til að lýsa kröfum. Ef til gjaldþrotaskipta kemur verður því mikilvægt að viðskiptavinir fylgist vel með allri upplýsingagjöf um málið og bregðist hratt við þeim leiðbeiningum sem veittar verða um kröfulýsingar og næstu skref.

Ef til þessa kemur mun T&R miðla upplýsingum til viðskiptavina um ferlið, kröfulýsingar og réttindastöðu um leið og tilefni gefst til.

Fyrirvari um upplýsingarnar

Upplýsingarnar hér að framan byggja á þeim upplýsingum sem T&R hefur aðgang að á þeim tíma sem þetta er birt. Staða málsins getur breyst með skömmum fyrirvara og endanleg réttaráhrif ráðast meðal annars af niðurstöðu dómstóla, ákvörðunum þar til bærra yfirvalda og þeim lögum og reglum sem gilda um möguleg gjaldþrotaskipti NOVIS.

Upplýsingunum er ætlað að upplýsa viðskiptavini almennt um stöðu málsins en fela ekki í sér einstaklingsbundna lögfræðilega, fjárhagslega eða skattalega ráðgjöf eða mat á réttindum einstakra vátryggingartaka.

T&R mun áfram fylgjast með framvindu málsins og miðla upplýsingum til viðskiptavina eftir því sem nýjar upplýsingar liggja fyrir.

Með kveðju,
Tryggingar og ráðgjöf ehf.

 

///// Uppfært 30. júlí /////

Í dag, fimmtudaginn 30. júlí, hefur Tryggingar og ráðgjöf ehf. sent viðskiptavinum með virka vátryggingarsamninga hjá NOVIS, sem Tryggingar og ráðgjöf þjónustar, eftirfarandi póst.

 

Kæri viðskiptavinur,

Við sendum þér þennan póst þar sem þú ert með virkan vátryggingarsamning hjá NOVIS sem Tryggingar og ráðgjöf þjónustar.

Við viljum upplýsa þig um mikilvæga þróun mála svo þú hafir sem bestar upplýsingar til að taka ákvörðun um samning þinn.

Núverandi staða

Hinn 14. júlí 2026 tók héraðsdómstóll í Slóvakíu ákvörðun um að hefja málsmeðferð vegna beiðni slóvakíska eftirlitsaðilans (NBS) um gjaldþrotaskipti yfir NOVIS. Ákvörðun héraðsdómstólsins frá 14. júlí sl. um að hefja málsmeðferð vegna beiðni NBS um gjaldþrotaskipti yfir NOVIS getur leitt til þess að NOVIS verði tekið til gjaldþrotaskipta, sem myndi hafa áhrif á samninga við íslenska viðskiptavini T&R með NOVIS samninga.

Þetta felur ekki í sér að NOVIS hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt þeim upplýsingum sem T&R hefur aflað hefur NOVIS frest til 14. ágúst 2026 til að leggja fram gögn og sýna fram á gjaldfærni sína áður en dómstóll tekur afstöðu til þess hvort skilyrði séu til gjaldþrotaskipta.

Hvað getur gerst næst?

Eftirfarandi sviðsmyndir geta orðið:

1. Gjaldþrotaskiptabeiðni verður hafnað

Þá myndi NOVIS halda starfsemi sinni áfram samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir.

2. Gjaldþrotaskiptabeiðni verður samþykkt

Ef svo færi hefði það afleiðingar fyrir starfsemi NOVIS og hugsanlega einnig áhrif á framkvæmd vátryggingarsamninga. Hvernig áhrifin yrðu í reynd fer eftir slóvakískum lögum og ákvörðunum þeirra aðila sem fara með skiptin. Á þessari stundu liggur ekki fyrir með fullri vissu hvernig meðferð einstakra samninga yrði háttað.

Tafir á útgreiðslum

T&R hefur þegar upplýst þá viðskiptavini sem hafa óskað eftir útgreiðslu eða uppsögn samninga um að verulegar tafir hafi orðið á afgreiðslu útgreiðslubeiðna hjá NOVIS.

Samkvæmt upplýsingum frá NOVIS eru slíkar beiðnir nú afgreiddar í tímaröð og afgreiðslutími er óviss.

Iðgjaldagreiðslur

Næsti gjalddagi samninga er 1. ágúst. Athugið að ef um beingreiðslusamning er að ræða getur verið dregið af reikningi 31. júlí.

Við hvetjum þig því til að kynna þér stöðu þíns samnings vandlega og taka ákvörðun um samning þinn með hliðsjón af þeim upplýsingum sem fyrir liggja og þínum eigin aðstæðum. Það getur meðal annars falið í sér:

  • að halda iðgjaldagreiðslum áfram,
  • að kanna hvort heimildir séu samkvæmt skilmálum til annarra úrræða.
  • eða að íhuga uppsögn samnings.

Sérstaklega er vert að nefna að við þær aðstæður sem eru uppi getur verið álitlegt að neyta úrræða samkvæmt samningum til að frest iðgjaldagreiðslum. Niðurstaða um hvort slíkt komi til álita ræðst meðal annars af stöðu einstakra samninga og inneign samkvæmt þeim og því hvort þetta úrræði hafi áður verið nýtt.

Að lokum

Við hvetjum þig til að hafa samband við T&R ef þú ert í vafa um hvernig þú vilt bregðast við á grundvelli þíns samnings. Við hvetjum þig sérstaklega til að huga að þeim möguleika að fresta iðgjaldagreiðslum ef slíkt getur átt við í þínu tilviki meðan að þess er beðið að mál skýrist.

T&R fylgist að öðru leyti náið með framvindu málsins. Félagið hefur fengið slóvakíska lögmannsstofu til að aðstoða við mat á réttarstöðu og stendur í reglulegum samskiptum bæði við NOVIS og fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands eftir því sem við á.

Ef þú hefur spurningar geturðu haft samband við T&R eða sent fyrirspurn á upplysingar@tryggir.is.

Share