VPV lífeyristrygging er sígild þjónusta í nútímalegum búningi. Sveigjanlegur sparnaður í evrum með starfslokatímabil upp að 85 ára aldri. Trygging fyrir inngreitt fé og líftrygging fram á efri ár.
Um VPV
VPV er elsta líftryggingafyrirtækið í Þýskalandi, stofnað árið 1827. VPV var stofnað af póstburðarmönnum sem líftryggingasjóður sem tryggði póst- og símastarfsfólk í Þýskalandi. Yfir þetta tímabil hefur VPV orðið öflugt og skapandi tryggingafyrirtæki – með samvinnu og gagnkvæmni. Allir geta nú notið góðs af þjónustu og reynslu VPV því þær eru aðgengilegar öllum.
Kostir lífeyristryggingar VPV:
- Ef sjóðsfélagi fellur frá þá greiðist inneignin út sem líftrygging til erfingja og því enginn erfðafjárskattur
- Sparnaður er í formi líftryggingar og því óaðfararhæfur við gjaldþrot
- 95% höfuðstólstrygging við útgreiðslu í samningslok
- 100% tryggð inneign ef inneign er greidd í formi mánaðarlegs lífeyris
- Sparnaður í evrum