Fréttir

Tryggingar og ráðgjöf lýkur máli við Seðlabanka Íslands með sátt

By júlí 30, 2026No Comments

Tryggingar og ráðgjöf ehf. og fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafa gert með sér sátt um að ljúka máli sem laut að upplýsingagjöf, skráningu tengsla og greiningu hagsmunaárekstra í tengslum við dreifingu vátryggingatengdra fjárfestingarafurða frá NOVIS á árunum 2019–2023.

Með sáttinni lýkur málinu endanlega. Samhliða meðferð þess hefur Tryggingar og ráðgjöf unnið markvisst að því að styrkja innra verklag sitt, stjórnarhætti, upplýsingagjöf og greiningu hagsmunaárekstra í nánu samstarfi við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Tryggingar og ráðgjöf hefur frá upphafi lagt áherslu á að eiga málefnalegt samstarf við eftirlitsaðila og veita allar þær upplýsingar og gögn sem óskað hefur verið eftir.

Í viðauka við sáttina kemur fram að fjármálaeftirlitið telji að félagið hafi brugðist við úrbótakröfum eftirlitsins með fullnægjandi hætti. Félagið hefur meðal annars gert eftirfarandi:

  • Endurskoðað reglur og verklag um hagsmunaárekstra
  • Uppfært upplýsingagjöf til viðskiptavina
  • Leiðrétt efni á vefsíðu og í upplýsingaskjölum
  • Uppfært upplýsingagjöf til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands
  • Upplýst þá viðskiptavini sem málið tók til

Málið varðar starfsemi sem nær aftur til áranna 2019–2023. Tryggingar og ráðgjöf hefur ekki dreift afurðum NOVIS frá því starfsleyfi félagsins var afturkallað árið 2023. Á þeim tíma hefur félagið lagt áherslu á að styðja viðskiptavini sína vegna þeirra fordæmalausu aðstæðna sem sköpuðust í kjölfarið og sinnt áfram þeirri þjónustu sem hvílir á félaginu gagnvart þeim samningum sem enn eru í gildi.

„Við fögnum því að málinu sé nú lokið. Við tókum athugasemdum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands mjög alvarlega og fórum strax yfir verklag okkar í heild, innleiddum þær úrbætur sem kallað var eftir og styrktum enn frekar þá stjórnarhætti og upplýsingagjöf sem eru grunnurinn að traustu sambandi við viðskiptavini okkar. Við munum áfram leggja ríka áherslu á gegnsæi, fagmennsku og ábyrga ráðgjöf í þjónustu okkar við viðskiptavini,“ segir Ásgerður Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri Trygginga og ráðgjafar.

Sjá nánar frétt Seðlabanka Íslands þar sem er að finna sáttina í heild.

Share