Sjálfbærnistefna
01.09.2026
Markmið
Tryggingar og ráðgjöf ehf. (T&R) leggur áherslu á ábyrga og sjálfbæra starfshætti og að hagsmunir viðskiptavina séu hafðir að leiðarljósi í starfsemi félagsins. Markmið sjálfbærnistefnu T&R er að setja fram þau meginviðmið sem félagið fylgir varðandi umhverfisþætti, félagslega þætti og góða stjórnarhætti, bæði í eigin starfsemi og við veitingu þjónustu til viðskiptavina. Við framkvæmd stefnunnar tekur T&R mið af eðli og umfangi starfsemi félagsins sem vátryggingamiðlara og þeirra skyldna sem hvíla á félaginu samkvæmt lögum og reglum.
Sjálfbærni í ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini
T&R leggur áherslu á að veita viðskiptavinum skýrar, sanngjarnar og ekki villandi upplýsingar og að ráðgjöf félagsins taki mið af þörfum og aðstæðum viðskiptavina. Þegar við á samkvæmt lögum og eðli þeirrar þjónustu sem veitt er kannar T&R sjálfbærnióskir viðskiptavina og tekur tillit til þeirra við mat á þeim afurðum sem geta hentað viðkomandi viðskiptavini. Upplýsingar um sjálfbærnieiginleika einstakra afurða byggja á upplýsingum frá þeim vátryggingafélögum og öðrum framleiðendum sem bera ábyrgð á viðkomandi afurðum. Ef þær afurðir sem T&R dreifir samræmast ekki tilgreindum sjálfbærnióskum viðskiptavinar er honum gerð grein fyrir því. T&R leggur áherslu á að upplýsingar um sjálfbærnieiginleika afurða séu settar fram með skýrum hætti og að ekki séu settar fram fullyrðingar um sjálfbærni umfram það sem viðeigandi upplýsingar og gögn styðja.
Ábyrgir viðskiptahættir og stjórnarhættir
T&R telur ábyrga viðskiptahætti og góða stjórnarhætti mikilvægan þátt sjálfbærrar starfsemi.
Félagið leggur meðal annars áherslu á:
- að hagsmunir viðskiptavina séu hafðir að leiðarljósi;
- faglega og heiðarlega viðskiptahætti;
- skýra og gagnsæja upplýsingagjöf;
- að greina og stýra hagsmunaárekstrum;
- viðeigandi áhættustýringu og innra eftirlit;
- vernd persónu- og trúnaðarupplýsinga; og
- að farið sé að lögum, reglum og innri reglum sem um starfsemina gilda.
Félagsleg ábyrgð
T&R leggur áherslu á gott starfsumhverfi sem einkennist af virðingu, jafnræði og fagmennsku. Félagið leitast við að stuðla að starfsþróun og fræðslu starfsmanna og að skapa heilbrigt og öruggt starfsumhverfi. Í samskiptum við viðskiptavini leggur T&R áherslu á sanngjarna meðferð, aðgengilega þjónustu og að upplýsingagjöf taki eftir því sem við á mið af þörfum og aðstæðum viðskiptavina.
Umhverfisáhrif eigin starfsemi
Bein umhverfisáhrif starfsemi T&R eru einkum tengd almennum skrifstofurekstri, orkunotkun, innkaupum, ferðalögum og notkun upplýsingatækni. T&R leitast við að draga úr óþarfa umhverfisáhrifum eigin starfsemi með raunhæfum aðgerðum, meðal annars með aukinni rafrænni þjónustu og skjalavinnslu, draga úr óþarfa notkun og sóun og að taka tillit til umhverfissjónarmiða við rekstrarákvarðanir þar sem það á við.
Upplýsingar um sjálfbærni afurða
T&R framleiðir ekki þær vátrygginga- og fjárfestingartengdu vátryggingaafurðir sem félagið dreifir.
Viðeigandi upplýsingar um sjálfbærnieiginleika, sjálfbærniáhættu og aðra sjálfbærnitengda þætti einstakra afurða byggja því á upplýsingum frá viðkomandi framleiðanda. T&R birtir eða vísar til viðeigandi sjálfbærniupplýsinga framleiðenda þeirra afurða sem félagið dreifir, eftir því sem lög og reglur gera ráð fyrir.
Ábyrgð og endurskoðun
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á framkvæmd stefnunnar og að viðeigandi verklag T&R taki mið af henni. Stefnan skal endurskoðuð reglulega og þegar verulegar breytingar verða á starfsemi félagsins eða þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda.
Upplýsingaskjal um sjálfbærnistefnu Allianz Target 4 Life
Upplýsingaskjöl um sjálfbærni í fjárfestingum VPV